Sex börn voru drepin í loftárás herja Bandaríkjanna og Ísraels á írönsku höfuðborgina Teheran í nótt. Reuters greinir frá þessu og segir óljóst hvort þau hafi farist í sömu árás á íbúðahverfi og íranskir miðlar sögðu hafa orðið þrettán að aldurtila. Ísraelsher sagðist í morgun hafa gert árás á skotmörk tengd klerkastjórninni. Ísraelska dagblaðið Haaretz segir tvo hafa verið drepna í eldflaugaárás Írana á borgina Haífa nyrst í Ísrael. Tveggja til viðbótar er leitað í rústum að sögn blaðsins. Íransher hefur í morgun gert árásir víðs vegar um Mið-Austurlönd og hótaði geigvænlegum hefndaraðgerðum stæði Bandaríkjaforseti við háværar hótanir um stórfelldar atlögur að borgaralegum innviðum Írans. Donald Trump nefnir brýr og orkuver sérstaklega og krefst þess að Íranar fallist á kröfur hans um opn