Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Úkraínumenn saka Rússa um að sviðsetja fyrirhugað skemmdarverk á gasleiðslu í Serbíu

Úkraínska utanríkisráðuneytið sakar Rússa um hafa sviðsett fyrirhugað sprengjutilræði við Balkan-gasleiðsluna í Serbíu til að hafa áhrif á úrslit kosninga í Ungverjalandi. Leiðslan flytur jarðgas frá Rússlandi til landanna á Balkanskaga og Ungverjalands.Aleksandar Vučić Serbíuforseti og ungverski forsætisráðherrann Viktor Orbán sögðu í gær lögreglu hafa fundið sprengiefni skammt frá leiðslunni. Orbán kenndi Úkraínumönnum ekki beinlínis um en sagði þá lengi hafa reynt að stöðva orkuflutninga frá Rússlandi til Evrópuríkja.Að loknum fundi öryggisráðs landsins sagði Orbán dagljóst að spellvirki hefði verið í undirbúningi. Þá sagði hann gasleiðslu milli Rússlands og Tyrklands, sem tengist Balkanleiðslunni, verða fyrir sífelldum árásum og aðgerðir Úkraínumanna ógnuðu lífi Ungverja. ÚKRAÍNUMENN
Úkraínumenn saka Rússa um að sviðsetja fyrirhugað skemmdarverk á gasleiðslu í Serbíu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta