Verð á hráolíu hefur hækkað talsvert þegar markaðir voru opnaðir í morgun. Tunnan af West Texas Intermediate fór í 113,62 bandaríkjadali og Brent-Norðursjávarolía í 110,30 dali.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið írönskum stjórnvöldum frest fram á þriðjudag til að semja um stríðslok og opna siglingaleiðina um Hormússund, ella verði lagt til atlögu að orku- og samgönguinnviðum landsins.„Þetta verður engu líkt,“ skrifaði Trump á samfélagsmiðilinn Truth Social í gær áður en hann sagði í viðtali á Fox góðar líkur á að Íranar óskuðu eftir samkomulagi þegar í dag, mánudag.Miðstjórn Íranshers hótar enn geigvænlegri hefndaraðgerðum verði ráðist til atlögu að borgaralegum innviðum. Yfirlýsing þess efnis var birt á Telegram-síðu ríkismiðilsins IRIB í dag.Komið er á sjöttu viku síðan Bandaríki