Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hápunkti Artemis-leiðangursins náð í dag þegar geimfarið flýgur umhverfis tunglið

Geimfarar NASA fljúga umhverfis tunglið síðar í dag, í fyrsta sinn í meira en hálfa öld. Þetta er hápunktur Artemis-leiðangursins sem hófst síðasta miðvikudag. Flugið umhverfis mánann tekur um sjö klukkustundir frá því kortér fyrir sjö í kvöld að íslenskum tíma og lýkur á öðrum tímanum næstu nótt. NASA sýnir beint frá fluginu á vefsíðu sinni, YouTube, Amazon og Netflix. Á meðan greina tunglfararnir og sérfræðingar á jörðu niðri frá því sem fyrir augu ber. NASA varar við að myndgæði kunni að verða bágborin á stundum í ljósi fjarlægðarinnar, þeirrar mestu sem nokkur maður hefur farið frá jörðinni, eða 406.772 kílómetra. Öll samskipti við Artemis munu rofna í um fjörutíu mínútur meðan Orion-farið verður handan tunglsins. Það fer ekki nær en 6.500 kílómetra sem auðveldar áhöfninni að sjá tungl
Hápunkti Artemis-leiðangursins náð í dag þegar geimfarið flýgur umhverfis tunglið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta