Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Aukið viðbragð í Grindavík vegna veðurs og óvissu um eldgos

Viðbragðsaðilar verða með aukinn viðbúnað í Grindavík og kringum Svartsengi meðan óveðrið geisar, þar sem enn ríkir óvissa vegna jarðhræringa og landriss með mögulegri eldgosshættu, að því er segir í tilkynningu Almannavarna. Björgunarsveit verður í Grindavík og bætt í vakt slökkviliðsins. Almannavarnir ráðleggja ferðafólki og íbúum að kynna sér vel aðstæður í ljósi þess að flóttaleiðir frá bænum gætu lokast með stuttum fyrirvara. Einnig er fólk hvatt til að fylgjast með tilkynningum frá Veðurstofu Íslands, Vegagerðinni og Lögreglunni.Slæmt ferðaveður verður á stórum hluta landsins í dag, annan í páskum, spáð er austanstórhríð og hvassviðri. Appelsínugul viðvörun verður í gildi frá hádegi á Suðvesturlandi, Suður- og Suðausturlandi auk hálendisins en gul viðvörun annars staðar frá því snemm
Aukið viðbragð í Grindavík vegna veðurs og óvissu um eldgos

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta