Björgun bandaríska hermannsins úr fjalllendi Írans síðastliðna nótt var afar flókin aðgerð og verulega kostnaðarsöm. Hundruð sérsveitarmanna ásamt tugum orrustuþotna og þyrlna komu að verkinu ásamt leyniþjónustunni CIA og fundu hann þar sem hann faldi sig í fjalllendi.Tvær flutningaflugvélar sem áttu að flytja björgunarlið komust ekki á loft frá afskekktri herstöð í Íran og voru eyðilagðar svo þær féllu ekki í óvinahendur, samkvæmt umfjöllun miðla á borð við BBC og Reuters.Íransher segir tvær Hercules C-130 flutningavélar og tvær Black Hawk þyrlur hafa eyðilagst í aðgerðinni. Sé það rétt hleypur kostnaðurinn á hundruðum milljóna dala. Einnig hafi leitardróna verið grandað yfir Isfahan. BBC kveðst hvoruga söguna hafa getað staðfest.„Hann meiddist eitthvað, en mun jafna sig,“ skrifaði Donald