Netlokun írönsku þjóðarinnar er nú orðin lengri en hjá nokkurri annarri þjóð í sögunni. Samkvæmt Netblocks, óháðum eftirlitshópi sem fylgist með netumferð í heiminum, hafa Íranir verið án internets í samfelldar 864 klukkustundir eða í að verða 37 daga.„Netlokun í Íran er nú lengsta lokun internetsins sem skráð hefur verið í nokkru landi og fer fram úr öllum sambærilegum atvikum í alvarleika nú þegar hún hefur sinn 37. dag eftir 864 klukkustundir,“ segir á vef Netblocks í færslu sem birtist í dag.Ekkert fjölmiðlafrelsi er í Íran og alþjóðlegir fjölmiðlar hafa takmarkaðan aðgang að landinu. Yfirvöld í landinu lokuðu fyrir veraldarvefinn 28. febrúar og þar hefur verið netlaust síðan.Á vef Netblocks segir að Íran sé fyrsta landið til að hafa verið með internet en tapað því eftir að það var fær