Hún er engin venjuleg kýr hún Branda á kúabúi undir Eyjafjöllum því hún var að bera þremur kálfum, tveimur nautum og einni kvígu. Allir kálfarnir hafa fengið nöfn sem tengjast páskunum.Á Stóru-Mörk búa bændurnir Aðalbjörg Ásgeirsdóttir og Eyvindur Ágústsson en þau eru með um 120 kýr og tvo mjólkurróbóta í fjósinu. Búskapurinn gengur vel en þau hafa til dæmis verið tvisvar sinnum með afurðahæsta kúabú landsins, sem er glæsilegur árangur.En þau hafa aldrei átt kú áður, sem ber þremur kálfum en það gerði hún Branda, sem kom með þrjá spræka kálfa í heiminn á föstudaginn langa en tíðni þríbura hjá íslenskum kúm er 1 af hverjum 20.000 burðum.Þetta er mjög merkilegt eða hvað?„Já, það er ekkert sérstaklega algengt að það komi þríkelfingar og alls ekki lifandi og heilbrigðir, þannig að þetta er bar