Stórhríð og slæmt ferðaveður verður á stórum hluta landsins á morgun.Töluverð umferð var til höfuðborgarinnar síðdegis í dag, líklega því ökumenn voru hvattir til að leggja fyrr af stað vegna veðurs. Appelsínugular viðvaranir taka gildi í nokkrum landshlutum um hádegi á morgun og verða í gildi fram á kvöld.Spáð er miklu hvassviðri og Vegagerðin hefur ákveðið að loka hringveginum á Suðurlandi í fyrramálið og Holtavörðuheiði um hádegi. Þá gæti vegum nærri höfuðborgarsvæðinu verið lokað með stuttum fyrirvara. Vegagerðin hvetur vegfarendur til að kanna aðstæður vel áður en lagt er af stað. Hægt er að fylgjast með færð og stöðu vega á Umferðin.is.Miklu hvassviðri er spáð á morgun og vindhviður gætu jafnvel toppað yfir 50 metra á sekúndu. Upplýsingafulltrúi Landsbjargar telur skynsamlegt að fólk