Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Lyfturnar eru tilbúnar til að taka á móti fólki en það er ekki vilji til að reka svæðið“

Saga skíðasvæðisins í Skálafelli nær aftur til ársins 1934 en þá lögðu fyrstu KR-ingarnir leið sína í fjallið og byggðu þar skíðaskála.Svæðið var byggt upp af sjálfboðaliðum á vegum skíðadeildarinnar en árið 1991 tóku sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu við rekstrinum.Skálafell hefur verið í rekstri, af og á, síðan.Þrátt fyrir að allur aðbúnaður til skíðaiðkunar sé til staðar hefur svæðið verið lokað í fjögur ár.Lyfturnar eru tilbúnar til að taka á móti fólki en það er ekki vilji til að reka svæðið, segir Guðmundur Guðjónsson, formaður skíðadeildar KR.Skíðalyfturnar í Skálafelli hafa staðið ónotaðar í mörg ár og liggja undir skemmdum vegna áhugaleysis sveitarfélaga á að opna svæðið. Grátlegt hirðuleysi, segir formaður Skíðadeildar KR, sem rak svæðið í áratugi. FRAMTÍÐARSÝNIN TEIKNUÐ UPP
„Lyfturnar eru tilbúnar til að taka á móti fólki en það er ekki vilji til að reka svæðið“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta