Viðhorf almennings til þjóðkirkjunnar hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum. Þetta má meðal annars sjá í könnun Gallups sem mælir traust almennings til stofnana. Fyrir tíu árum sögðust 39 prósent bera traust til þjóðkirkjunnar. Hlutfallið fór lækkandi og var komið niður í 26,1 prósent fyrir tveimur árum. Síðan þá hefur traustið farið vaxandi og mældist tæp 48 prósent í síðustu könnun sem var birt í febrúar.Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands segir að fleiri leiti til kirkjunnar nú en áður.„Við sjáum það á kirkjusókn og við sjáum það í auknum fjölda í athöfnum. Og kannski síðast en ekki síst að það er ekkert hallærislegt lengur að tala um Guð og að vera trúuð,“ segir Guðrún.Staða heimsmála skýri þessa þróun að vissu leyti.„Það er aukinn óróleiki í heiminum og þá sækir fólk gjarna