Í þessum mánuði verða 114 ár frá því farþegaskipið Titanic lagði upp í jómfrúarferð sína og sökk í Norður-Atlantshafið. Teikningar og uppdrættir af skipinu verða brátt gerð aðgengileg almenningi í fyrsta sinn.Þegar Titanic var byggt var það stærsta og um margt fullkomnasta skip sem byggt hafði verið og var búið áður óþekktum þægindum og tækni. Rafstöð skipsins gat til að mynda framleitt meira rafmagn en notað var í mörgum borgum á þessum tíma.Teikningar og uppdrættir af skipinu eru meðal hundraða þúsunda skipsteikninga og skjala frá einni stærstu skipasmíðastöð þess tíma í Belfast. Þjóðminjasafn Norður-Írlands í samstarfi við Ulster Folk safnið í Belfast gerir skjölin nú aðgengileg almenningi. Hægt verður að skoða þau bæði á vef og með því að panta tíma en þau hafa aðeins verið aðgengileg