Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kvöldopnun í Oddsskarði þar sem hefur snjóað of mikið

Fjöldi fólks hefur nýtt veðurblíðuna um land allt til að renna sér á skíðum um páskana en í Oddsskarði fyrir austan hefur gengið illa að halda opnu vegna mikillar snjókomu. Í kvöld verður sérstök kvöldopnun sem lýkur með flugeldasýningu.Opið var í Oddsskarði á skírdag en lokað föstudaginn langa. Í gær var opið en fresta þurfti kvöldopnun og dagskrá sem henni fylgdi. Þá var opnun í dag frestað fram á kvöld, en þá býst Jóhann Ragnar Benediktsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja hjá Fjarðabyggð, við góðri stemningu.„Það er búið að snjóa náttúrulega alveg ótrúlega mikið hérna og svo tekur ákveðið marga klukkutíma að vinna þetta og þá er bara farið að snjóa aftur þegar troðarinn er kannski búinn að gera klárt svæðið,“ segir Jóhann.Hann segir útlit gott fyrir kvöldið og vonar að íbúar og gestir
Kvöldopnun í Oddsskarði þar sem hefur snjóað of mikið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta