Þingmaður sem vill fjölga niðurgreiddum ferðum fyrir börn sem þurfa að ferðast milli forráðamanna hefur efasemdir um Loftbrúarfyrirkomulagið. Kostnaður Vegagerðarinnar við niðurgreiðslurnar hækkar ár frá ári.Loftbrú er niðurgreiðsla ríkisins á flugfargjöldum til og frá Reykjavík fyrir fólk með lögheimili á Vestfjörðum, Norðurlandi, Austurlandi og í eyjum. Ríkið niðurgreiðir 40% af sex flugleggjum á mann.Þorgrímur Sigmundsson þingmaður Miðflokksins hefur lagt fram þingsályktunartillögu um breytingu á Loftbrú þannig að ferðum verði fjölgað úr sex leggjum í tólf á ári fyrir börn sem ferðast þurfa á milli landshluta til foreldra eða forráðamanna.„Hvatinn að þessu er fólk sem ég hef verið í sambandi við sem er í þeirri stöðu að búa sitt hvoru megin á landinu kannski og eiga, það fólk sem ég hef