Leó páfi XIV kallaði eftir því að leiðtogar heimsins veldu frið fram yfir átök í fyrstu páskamessu sinni í Vatíkaninu í dag. Hann tók við embætti eftir að Frans páfi lést í apríl í fyrra.Páfinn flutti ávarp sitt frá svölum Péturskirkjunnar við Péturstorg í morgun. Þar sagði hann mikilvægt að segja skilið við löngun til átaka, yfirráða og valds. Þess í stað bað hann Drottin um að færa frið í heimi lituðum af stríði, sinnuleysi og hatri – í heimi þar sem fólk upplifi sig oft máttlaust gagnvart hinu illa.„Þeir sem eiga vopn skulu leggja þau niður. Þeir sem hafa vald til að hefja stríð skulu velja frið. Ekki frið sem er þvingaður með valdi, heldur náð fram með samræðum. Ekki með löngun til þess að drottna yfir öðrum heldur til að mæta þeim,“ sagði páfinn. „OFT VIRÐIST GUÐ EKKI VERA TIL“ Þús