Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Loka á Suðurlandi í fyrramálið og Holtavörðuheiði í hádeginu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir því til fólks sem þarf að vera á ferðinni á morgun, annan í páskum, að fara áður en veðrið skellur á - eða eftir að því slotar. Það auðveldi mjög störf allra viðbragðsaðila ef þörf verður á slíku.Von er á austanstórhríð og hvassviðri. Appelsínugul viðvörun verður í gildi á Suðvesturlandi, Suður- og Suðausturlandi auk hálendisins en gul viðvörun annars staðar. Vegir verða á óvissustigi og gætu lokast, meðal annars þeir sem liggja að höfuðborgarsvæðinu. Von er á mörgum á ferðinni heim eftir páskafrí og er fólk hvatt til að fylgjast vel með og leggja annaðhvort snemma af stað eða bíða veðrið af sér.Þegar er búið að ákveða að loka Holtavörðuheiði klukkan tólf á hádegi á morgun. Ekki er talið líklegt að hún verði opnuð aftur fyrr en á þriðjudag. Á Suðurland
Loka á Suðurlandi í fyrramálið og Holtavörðuheiði í hádeginu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta