Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Nánast vatnslaust í Úthlíð

Mjög vatnslítið er í Úthlíð í Bláskógabyggð og mörg frístundahús nærri vatnslaus. Ekki er útlit fyrir að það breytist fyrr en fer að rigna samkvæmt upplýsingafulltrúa Veitna.Vísir sagði frá því í gær að fólk hefði flúið sumarhúsabyggðina í Úthlíð vegna vatnsleysis. Á vef Veitna birtist á fimmtudag tilkynning vegna mjög lágrar vatnsstöðu og lágs vatnsþrýstings vegna langvarandi þurrka. Þar segir að úrkoma fyrstu tvo mánuði ársins hafi aðeins numið 14 prósentum af meðaltali fyrir mánuðina.Silja Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi Veitna segir í samtali við fréttastofu að staðan gæti batnað nú þegar færri eru í hverfinu. Að öðru leyti sé lítið hægt að gera en að bíða eftir þýðu og úrkomu.„Við höfum áður keypt vatn af Bláskógabyggð en þau eru ekki aflögufær núna af því það er svo lítið vatn á svæ
Nánast vatnslaust í Úthlíð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta