Bandaríkjaforseti segir góða möguleika á því að Bandaríkin semji um frið við Íran á morgun. 48 tíma frestur sem hann gaf írönskum stjórnvöldum til að semja um frið eða opna siglingaleiðina um sundið er brátt á enda. Fyrr í dag hét hann því að Íranar eigi eftir að búa í helvíti opni þeir ekki Hormússund.Í morgun sagði hann hermanninn, sem var bjargað eftir að orrustuþota sem hann var í var skotin niður í Íran á föstudag, alvarlega slasaðan og að íranskar hersveitir hefðu verið nálægt því að ná til hans áður en honum var bjargað. „OPNIÐ HELVÍTIS SUNDIÐ, BRJÁLUÐU DRULLUSOKKAR“ Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði Írana brjálaða skíthæla og hótaði öllu illu í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social í dag opni þeir ekki Hormússund. Þann 27. mars gaf hann Írönum tíu daga til þess að breg