Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

214 sóttu um lögreglunám í Háskólanum á Akureyri

Alls sóttu 214 um nám í lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn í Háskólanum á Akureyri en frestur er nýlega runninn út. 80 stúdentar verða teknir inn í námið.Aldrei sóttu fleiri um námið en í fyrra en þá sóttu 232 um, árið 2024 voru 191 umsókn og árið 2023 voru 190 umsóknir.„Núna tekur við inntökuferlið. Þegar því lýkur er ljóst hverjum verður boðið námspláss. Námið hefst svo formlega 24. ágúst á nýnemadögum háskólans, þegar lögreglufræðinemarnir mæta í fyrstu námslotuna sína á Akureyri. Þetta er tveggja ára diplómanám,” segir Sólveig María Árnadóttir, verkefnastjóri samfélagsmiðla og samskipta hjá háskólanum.Útskrifaðir lögreglumenn frá Háskólanum á Akureyri vorið 2025, ásamt stjórnendum skólans og námsinsLjósmynd / Aðsend
214 sóttu um lögreglunám í Háskólanum á Akureyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta