Gleðin var allsráðandi á Ísafirði um páskana. Þar fór fram tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður og fjöldi fólks renndi sér á skíðum í rjómablíðu.Að sögn Gísla Úlfarssonar, eiganda verslunarinnar Hamraborgar, er helgin sú annasamasta á ári hverju. Hann segir síðustu daga hafa gengið glimrandi vel fyrir sig.„Þeir voru hérna, bróðir minn, sonur minn og tilvonandi tengdasonur, og stóðu vaktina. Svo þegar allt fyllist hérna eftir að böllin eru búin er búðin bara kjaftfull. Þá komast ekki fleiri inn,“ segir Gísli sem rekur verslunina ásamt Úlfi bróður sínum.„Svo er svo gaman að því að í hópi þessa unga fólks sem er að skemmta sér er fullt af ungu fólki sem hefur unnið hérna eða er að vinna hérna. Það kemur bara og grípur í.“Verslunin er opin allan sólarhringinn tvo daga á ári, í gær og í fyrrada