„Þátttaka okkar liðsmanna flughersins var hugsuð til afþreyingar og sem eins konar umbun fyrir vel unnin störf,“ segir bandarískur hermaður sem á sjötta áratugnum tók þátt í stórsókn gegn háhyrningum sem valdið höfðu miklu tjóni á netum íslenska síldveiðiflotans. Sjálfboðaliðar skutu á hvalina og loks var varpað á þá djúpsprengjum úr lofti.