Tónlistarmaðurinn Daði Freyr Pétursson skaut óvænt upp kollinum í þættinum Góðir Íslendingar á RÚV um síðustu helgi þar sem hann keppti í spurningakeppni um Eurovision og tók lagið Think About Things við góðar undirtektir. Hann hefur látið nokkuð lítið fyrir sér fara undanfarið en eftir ellefu ár í Berlín í Þýskalandi er hann fluttur heim og hefur sest að í Hveragerði.Undanfarin ár hafa verið viðburðarík fyrir tónlistarmanninn sem sendi nýlega frá sér lagið Hot Damn og leggur drög að tónleikaferð um Bandaríkin í haust. Hann leit við í Morgunútvarpið á Rás 2 og ræddi ferilinn, hvernig það kom ekki að sök að Eurovision-keppninni skyldi hafa verið frestað árið 2020 og hvernig hann gat komist hjá því að festast í þeirri kreðsu sem oft verður í kringum þá keppni.Það var stór ákvörðun að flytja