Vegir til og frá höfuðborgarsvæðinu verða settir á óvissustig fyrir hádegi á morgun og á Suður- og Suðausturlandi er viðbúið að óvissustig taki gildi klukkan 8 í fyrramálið. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar hvetur fólk til að leggja snemma af stað, eða bíða veðrið af sér.„Þetta hefst seinni partinn fyrir vestan og norðan, en frekar fyrr fyrir sunnan svo það þarf að passa sig að leggja ekki af stað og keyra suður í veðrið ef vegir verða á óvissustigi og jafnvel geta lokast undir Kjalarnesi og Hafnarfjalli í kringum og upp úr hádegi,“ segir Páll Ágúst Þórarinsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar.Hann segir að lægðin komi upp að suðurströndinni í fyrramálið og mjakist smám saman yfir landið.Verði fólk á ferðinni og stefni á höfuðborgarsvæðið þurfi að það að vera komið þangað fyrir hádegi. Komi þ