Tveir vélsleðamenn lentu ofan í Fúlukvísl í Þjófadölum við rætur Langjökuls fyrir hádegi. Mikið viðbragð var ræst út bæði af Norður- og Suðurlandi og þyrla Landhelgisgæslunnar flytur fólkið, sem er kalt og hrakið en óslasað, til Reykjavíkur.Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir fólkið hafa verið á leið yfir ána þegar það missti sleðana niður og féll í ána. Það hafi komist upp úr af sjálfsdáðum en verið kalt og hrakið.Björgunarsveitir frá Blönduósi og Skagaströnd voru ræstar út, sem og björgunarsveitir úr Árnessýslu. Það voru þó björgunarsveitarmenn úr Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur, sem voru á ferðinni í Kerlingarfjöllum, sem kom fyrst að fólkinu og veittu því aðhlynningu.Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir þyrluna hafa lent á staðnum rétt