Grindvíkingar sem voru með lögheimili í bænum fyrir rýmingu 10. nóvember 2023 gátu óskað sérstaklega eftir því að fá að kjósa í bænum í komandi kosningum þrátt fyrir að vera fluttir í annað sveitarfélag. Alls sóttu 379 manns um þessa undanþágu en umsóknarfrestur rann út um mánaðamótin.Kjartan Friðrik Adólfsson formaður kjörstjórnar Grindavíkur segir þetta vera fólk sem vilji hafa áhrif á framtíð bæjarins og hafi mögulega hug á því að koma til baka á einhverjum tímapunkti.„Þetta er til að gefa fólki sem hefur þurft að flytja lögheimili útaf skólagöngu og annað slíkt hjá börnum að gefa því fólki tækifæri á því að hafa áhrif á og móta framtíð Grindavíkur eftir kosningar sem það hefði annars ekki haft,“ segir Kjartan.Frestur til að skila inn framboði vegna komandi kosninga rennur út á föstudag