Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hljóðrás Björgunarafreksins við Látrabjarg komin í leitirnar eftir áratugi

Upprunaleg hljóðrás heimildarmyndarinnar Björgunarafrekið við Látrabjörg kom nýverið í leitirnar eftir að hafa verið talin glötuð í tæp 80 ár. Þjóðskjalasafn Íslands og Kvikmyndasafn Íslands hafa nú undirritað samkomulag um varðveislu hljóðskrár kvikmyndarinnar, sem er með allra merkilegustu heimildarmyndum þjóðarinnar.Kvikmyndasafnið varðveitir upprunalega gerð Björgunarafreksins við Látrabjarg og nú stendur til að leggja upprunalegu hljóðrásina, sem er af stálþræði, við hana. Við það fæst útgáfa af myndinni sem ekki hefur sést, eða heyrst, í um 77 ár, að undanskildum tíu mínútum sem glatast hafa af þræðinum. STÓRMERKILEG HEIMILDARMYND Björgunarafrekið við Látrabjarg rekur hetjudáðir meðlima í Björgunarfélaginu Bræðrabandinu sem björguðu tólf af fimmtán skipbrotsmönnum af breska togara
Hljóðrás Björgunarafreksins við Látrabjarg komin í leitirnar eftir áratugi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta