Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Viðvaranir orðnar appelsínugular á morgun

Veðurstofan hefur uppfært viðvaranir fyrir morgundaginn, annan í páskum. Appelsínugul viðvörun verður í gildi á Suðvesturlandi, Suður- og Suðausturlandi auk hálendisins en gul viðvörun annars staðar.Varað er við austan stormi og hríð og segir Veðurstofan að þar sem appelsínugul viðvörun er í gildi - verður ekkert ferðaveður. Varað er við staðbundnum hviðum yfir 40 metra á sekúndu og ítrekað er að fólk kynni sér vel aðstæður.Gul viðvörun tekur gildi um allt land klukkan átta í fyrramálið en hún verður appelsínugul syðst fyrir hádegi. Upp úr hádegi bætast miðhálendið og Faxaflói við. Viðvaranir eru í gildi um allt land fram yfir miðnætti, en lengst er appelsínugula viðvörunin á Faxaflóa. Hún er í gildi fram á þriðjudagskvöld.„Ekkert ferðaveður. Einnig eru líkur á foktjóni og er fólk hvatt ti
Viðvaranir orðnar appelsínugular á morgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta