Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Læknaði berkla með ljósi: Hver var hinn Nóbelshafi Íslands?

Íslendingar eiga tvo Nóbelsverðlaunahafa en þó er annar þeirra mörgum Íslendingum gleymdur. Niels Ryberg Finsen hlaut Nóbelsverðlaunin árið 1903 fyrir rannsóknir sínar á ljósmeðhöndlun við hörundsberklum og öðrum sjúkdómum og varð fyrsti danski handhafi verðlaunanna, sem þá voru nýtilkomin. Vegna sérsviðs síns var hann kallaður ljóslæknirinn.Uppruni Finsens teygir sig þó líka til Færeyja, þar sem hann fæddist, og til Íslands þar sem hann á rætur að rekja í föðurætt. Hann bjó hér um nokkurt skeið og lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum sem þá hét. Í aðalbyggingu Menntaskólans í Reykjavík er minnisvarði um námsár Finsens.Í þættinum Ljóslæknirinn: Hinn íslenski Nóbelshafinn á Rás 1 fjallar Jóhannes Ólafsson um Finsen, tengsl hans við Ísland og afrekin á sviði læknavísinda. DANI, FÆREYINGUR
Læknaði berkla með ljósi: Hver var hinn Nóbelshafi Íslands?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta