Fjórir almennir borgarar voru drepnir og fimm særðir þegar Ísraelsher gerði drónaárás í úthverfi Gazaborgar fyrir dögun.Hermenn ganga í áttina að ísraelskum skriðdreka.EPA / JACK GUEZ / POOLAlmannavarnir á vegum Hamas greindu frá atlögunni í morgun og Al-Shifa-sjúkrahúsið staðfestir manntjónið. AFP-fréttaveitan hefur eftir fulltrúa Ísraels að verið sé að yfirfara skýrslur um árásina.Heilbrigðisráðuneyti Hamas segir herinn hafa drepið minnst 715 Palestínumenn á Gaza síðan vopnahlé milli Ísraels og Hamas hófst í október. Hvor fylking hefur iðulega sakað hina hástöfum um vopnahlésbrot. Sameinuðu þjóðirnar telja tölur ráðuneytisins marktækar. Ísraelsk stjórnvöld segja fimm hermenn hafa verið drepna á sama tíma.