Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Trump segir herinn hafa unnið einstakt afrek við björgun flugmannsins

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir herinn hafa unnið einstakt björgunarafrek í nótt með því að finna hermann úr áhöfn F15 orrustuþotu sem Íranar skutu niður á föstudag. „Við fundum hann,“ skrifaði Trump á Truth Social og sagði manninn heilan á húfi. „Hann meiddist eitthvað, en mun jafna sig,“ skrifaði Trump. Sérsveitir Bandaríkjahers hafa komið manninum heilum á húfi undan í einhverri erfiðustu björgunaraðgerð sögunnar. Trump segist hafa skipað hernum að senda tugi flugvéla búna öflugustu vopnum veraldar til að heimta hermanninn úr helju. Bandarískir miðlar sögðu hinum úr áhöfn orrustuþotunnar hafa verið bjargað á föstudag, þeirrar fyrstu sem Íranir hafa grandað í stríðinu. Trump sagði þetta í fyrsta sinn í manna minnum að tveimur bandarískum flugmönnum hefði verið bjargað frá óvinasvæði
Trump segir herinn hafa unnið einstakt afrek við björgun flugmannsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta