Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hermaðurinn úr F-15 þotunni fundinn

Hermaður sem var um borð í F-15 þotu Bandaríkjahers sem Íransher skaut niður á föstudag er fundinn en ekki hólpinn að sögn al-Jazeera og fleiri miðla. F15 orrustuþota sömu gerðar og Íranir skutu niður á föstudag.AP / Maya AlleruzzoDonald Trump Bandaríkjaforseti segir hins vegar sérsveitir Bandaríkjahers hafa komið manninum heilum á húfi undan í einhverri erfiðustu björgunaraðgerð sögunnar. Talsmaður Bandaríkjastjórnar segir björgunaraðgerðir enn standa yfir og markmiðið sé að koma flugmanninum brott frá Íran. Írönsk stjórnvöld hétu umbun hverjum þeim sem finndi hann. Tíðindi af björgunaraðgerðunum eru enn harla óljós en al-Jazeera segir hafa komið til skotbardaga áður en sérsveitir Bandaríkjahers fundu hermanninn.
Hermaðurinn úr F-15 þotunni fundinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta