Egyptinn Mohamed El-Baradei, fyrrverandi yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, biður Persaflóaríki, Sameinuðu þjóðirnar, Evrópusambandið og Emmanuel Macron Frakklandsforseta um að koma í veg fyrir hótanir Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að „láta eldi og brennisteini“ rigna Íran.„Ég bið ykkur, einu sinni enn, gerið allt sem þið getið áður en þessi brjálæðingur breytir svæðinu í logandi víti,“ skrifaði Mohamed El-Baradei á samfélagsmiðilinn X, og merkti framangreind auk utanríkisráðuneyta Kína og Rússlands.Trump setti Íransstjórn afarkosti í gær með því að gefa henni tvo sólarhringa til þess að semja um frið eða opna siglingaleiðina um Hormússund, ella verði innviðum Írans gereytt. Hann gaf Íran þá kosti að semja eða opna sundið 26. mars og ítrekaði í gær að tíminn væri senn á þr