Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Konungsfjölskyldan sögð í ákveðinni klemmu vegna dætra fallna prinsins Andrews

Nokkrir sérfræðingar í málefnum bresku konungsfjölskyldunnar segja hana eiga að fjarlægast Eugene og Beatrice, dætur fyrrverandi prinsins Andrew Mountbatten-Windsor, enda tengdust þær kynferðisbrotamanninum Jeffrey Epstein líka. Óviss framtíð þessara dætra Mountbatten-Windsor og Söruh Ferguson, hefur valdið bresku hirðinni nokkru hugarangri undanfarið. Hún staðfestir þó að þær haldi prinsessutitlum sínum en Karl konungur svipti bróður sinn og föður þeirra öllum vegtyllum í október vegna tengsla hans við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Á daginn hefur komið að hann bauð mæðgunum í heimsókn aðeins viku eftir að hann var látinn laus úr fangelsi 2009. Það veldur vanda og kveikir erfiðar spurningar að mati Ed Owens, sérfræðings um konungsfjölskylduna. Systurnar hafi ferðast fyrir skattfé
Konungsfjölskyldan sögð í ákveðinni klemmu vegna dætra fallna prinsins Andrews

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta