Þýskir karlmenn á aldrinum 17 til 45 ára þurfa að sækja um sérstakt leyfi hyggist þeir dvelja lengur en þrjá mánuði erlendis samkvæmt ákvæðum nýrra laga sem innleiddu sjálfboðaherþjónustu. Lögin tóku gildi 1. janúar og er ætlað að auðvelda herkvaðningu komi til hernaðarógnar, ekki síst af hálfu Rússa, segir í skriflegu svari talsmanns varnarmálaráðuneytisins við fyrirspurn BBC. Fáir höfðu gefið ákvæðinu gaum fyrr en dagblaðið Frankfurter Rundschau fjallaði um það á föstudaginn. Lengri dvöl ber almennt að samþykkja og óljóst þykir hvernig yfirvöld bregðast við broti á tilkynningaskyldunni. BRÝNT AÐ VITA HVERSU MARGIR DVELJA Í ÚTLÖNDUM Í skriflegu svari ráðuneytisins segir að brýnt sé að vita hversu margir séu erlendis komi til neyðarástands. Einnig er viðurkennt að skilyrðin hafi víðtæk