Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Engan sakaði í sprengingu við miðstöð samtaka hliðhollra gyðingum

Engan sakaði og minniháttar skemmdir urðu þegar sprengja sprakk nærri miðstöð samtakanna Kristnir fyrir Ísrael í hollensku borginni Nijkerk. Lögregla segir rannsókn sýna að svartklædd manneskja kom sprengjunni fyrir utan við hlið miðstöðvarinnar. Talsmenn samtakanna segja að þótt tjónið sé lítið verði afleiðingarnar miklar og sögðust uggandi yfir endurteknum atlögum að gyðingum og stuðningsfólki Ísraels í Hollandi og Belgíu. Harakat Ashab al-Yamin al-Islamiya, lítt þekkt samtök íslamista sem talin eru tengd Íran, birtu myndskeið af byggingunni og hótanir í garð stuðningsfólks Ísraels. Þau hafa lýst ábyrgð á skemmdarverkum í framangreindum löndum auk Bretlands og birt myndskeið af þeim. HAFA LÝST ÁBYRGÐ Á FLEIRI TILRÆÐUM Frá því Bandaríkin og Ísrael réðust á Íran 28. febrúar hafa samtöki
Engan sakaði í sprengingu við miðstöð samtaka hliðhollra gyðingum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta