Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íransher gefur lítið fyrir hótun Trumps

Stjórn Íranshers gefur lítið fyrir hótun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að ríkið hafi aðeins tvo sólarhringa til að semja um frið eða opna siglingaleiðina um Hormússund, ellegar verði helvíti látið rigna yfir landið.Í yfirlýsingu frá Íransher sakar herforinginn Ali Abdollahi Alibadi Trump um að vera árásargjarn og þrífast af stríðsrekstri. Hótun forsetans sé ógáfuleg, örvæntingarfull og gerð í æsingi. Alibadi varar Trump enn fremur við því að hlið heljar muni opnast fyrir Ísraelum og Bandaríkjamönnum.Þá segir Ebrahim Zolfaghari, talsmaður Íranshers, að ef árásir haldi áfram muni „svæðið allt verða helvíti á jörðu“ fyrir bæði Ísraela og Bandaríkjamenn.
Íransher gefur lítið fyrir hótun Trumps

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta