Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Átak vegna minnkandi bílbeltanotkunar ungs fólks

Minnkandi bílbeltanotkun í aldurshópnum 18 til 24 ára mælist í árlegri viðhorfskönnun Samgöngustofu. Stofnunin hefur ráðist í átak til að stuðla að viðhorfsbreytingu.„Í lok árs '24 þá sjáum við tölurnar þannig að þær öskra á viðbrögð,“ segir Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu.„Við erum bara að sjá minnkandi beltanotkun hjá ungu fólki þannig að við erum að bregðast við þessari tölfræði að þetta eru svona má segja kannski á bilinu 10 til 15 prósent sem eiga það til að sleppa beltinu og það er eiginlega bara í okkar huga alltof mikið.“Fjórtánfalt líklegra sé að látast í bílslysi þegar bílbelti eru ekki notuð, segir Gunnar.„Síðustu tuttugu ár hafa fleiri látist beltislausir heldur en í belti í innanbæjarslysum og þegar við sjáum að beltanotkunin er y
Átak vegna minnkandi bílbeltanotkunar ungs fólks

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta