Yfirmaður barnaspítala á Gaza varar við því að vannærðum börnum virðist fjölga á ný og á sama tíma er skortur á sérstakri mjólk fyrir vannærð börn. Hægt og illa gengur að hreinsa rústir og byggja heimili upp að nýju vegna takmarkana ísraelskra stjórnvalda.Um eitt hundrað börn leita á barnaspítalanna á Nasser-sjúkrahúsinu í hverri viku. „Um 30% þjást af alvarlegri vannæringu og 50% af miðlungs vannæringu,“ segir Israa Al-Najjar, yfirmaður á næringardeild.Ahmed Al-Farra, yfirmaður barnaspítalans, segir alvarlegan skort á vörum fyrir vannærð börn.Mjólk fyrir vannærð börn er ekki það eina sem skortir. Ísraelsk stjórnvöld takmarka enn mjög hverju er hleypt inn á svæðið. Þar á meðal eru hveiti og gas, þess vegna er mikill skortur á brauði og fólk bíður í löngum röðum eftir mataraðstoð.Hundruð þú