Sólarþyrstir Íslendingar settu margir hverjir stefnuna á Kanaríeyjar um páskana. Ætla má að yfir tíu þúsund hafi ferðast þangað og sums staðar er vart þverfótað fyrir Íslendingum.Herdís Hrönn Árnadóttir, vert á Nostalgiu - íslenska barnum á Tenerife, segir að flestir haldi til á svipuðum slóðum á eynni. „Þetta er eins og ef þú byggir á Gullfossi og Geysi. Þetta eru bara túristar og þar sameinast þeir allir.“„Fólk er að koma hérna í viku og það vill bara sólina,“ segir Herdís. „Ef það dregur fyrir sólu í fimm mínútur þá er það bara: Ertu að grínast? Ég er bara búin að vera í snjó og nú verð ég að fá sól og D-vítamín.“„Sem ég skil vel, eftir dimman vetur, þá er dásamlegt að koma hérna í hlýjuna.“„Við skulum vona að það fari að vora hjá ykkur og snjórinn fari. Við fylgjumst með ykkur hérna.“