Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Brúarhönnuður leiðir fyrsta lista Viðreisnar á Akranesi

Burðarþolssérfræðingurinn og brúarhönnuðurinn Jón Guðni Guðmundsson leiðir lista Viðreisnar á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Listinn er sá fyrsti sem Viðreisn teflir fram í sveitarfélaginu.Í öðru sæti listans er Helga Björg Þrastardóttir matreiðslumeistari og í því þriðja Ingvar Örn Ákason verkefnastjóri. Fjórða sætið skipar Guðný Sara Birgisdóttir, fjáröflunarstjóri Krafts og listakona.Í framboðstilkynningu segist Jón Guðni Guðmundsson, oddviti flokksins, hafa mikla trú á því að Viðreisn muni koma af krafti inn í mál bæjarins með lausnamiðaðri nálgun og jákvæðni að leiðarljósi.Mikilvægt sé að samþætta húsnæðismál, skipulagsmál og atvinnumál með öðrum málaflokkum sem séu grunnstoðir samfélagsins.
Brúarhönnuður leiðir fyrsta lista Viðreisnar á Akranesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta