Á vormánuðum árið 1973 var söngleikurinn Kabarett fyrst frumsýndur á Íslandi, í Þjóðleikhúskjallaranum. Sýningunni var misvel tekið af gagnrýnendum enda litu margir þeirra á söngleiki sem fremur ómerkilegan pappír. Baldvin Halldórsson olli síðan fjaðrafoki þegar hann hafnaði Silfurlampanum, verðlaunum félags leikdómara, á verðlaunaafhendingu sem fór fram eftir eina sýninguna. Það er önnur saga. Nú ríflega hálfri öld síðar má sjá...