Línumenn á Egilsstöðum höfðu í nægu að snúast í gær þegar raflínur slitnuðu og staur brotnaði við Hjaltastaðaþinghá. Hafliði Bjarki Magnússon, verkstjóri hjá Rarik, segir það heldur sjaldgæft að tvær ólíkar bilanir komi upp með svo stuttu millibili.Aðfaranótt föstudagsins langa bárust fregnir af því að rafmagni hefði slegið út við Hjaltastaðaþinghá við Bjarglandsá á Héraði. Hafliði fór á staðinn ásamt samstarfsmanni sínum en þegar þangað var komið sáu þeir að raflína hafði skemmst í snjókomunni og rokinu sem þar hefur geisað undanfarna daga.Þegar Hafliði og félagi hans höfðu lagað línuna héldu þeir að þar með væri verkefninu lokið. Sú var þó ekki raunin.„Þá förum við bara heim og förum að sofa og teljum okkur vera búna að gera við þetta,“ segir Hafliði sem náði að sofa í klukkutíma áður en