Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir allt landið á mánudag, annan í páskum, frá því snemma morguns fram á aðfaranótt þriðjudags. Varað er við austan stórhríð. Búist er við 18-28 metrum á sekúndu, hvassast verður syðst, en búist við hægari vindi norðanlands fram eftir degi.Snjókoman verður mest sunnan- og austantil, áður en fer að hlýna smám saman með rigningu sunnantil.Veðurstofan undirstrikar að búast megi við talsverðum samgöngutruflunum og versnandi akstursskilyrðum. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám, en búast má við fjölmörgum á ferðinni á heimleið eftir páska.Samgöngutruflanir hafa mestar verið á Austurlandi í dag. Upp úr hádegi var opnað um Fjarðarheiði og Vatnsskarð eystra. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er þæfingur þar og vegirnir einbreiðir