Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri Flokks fólksins, segir óheppilegt hve miklum fjármunum hafi verið varið í páskaegg hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu, sem Inga Sæland, formaður flokksins, fer fyrir.Vísir greindi frá því í vikunni að kostnaður við páskaegg hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu hafi numið yfir 700 þúsund krónum. Ráðherra gaf ráðherrum ríkisstjórnarinnar einnig páskaegg. Eggin sjálf, sem voru frá Nóa Síríus og af stærð 7, kostuðu 457.933 krónur og kostnaður við gerð sérhannaðra umbúða nam 239.200 krónum, að undanskildum virðisaukaskatti.Heimir Már, sem var gestur í Vikulokunum á Rás 1, sagði að málið væri óheppilegt en að fjárhæðirnar væru ekki þannig að þær myndu velta öllu um koll. Starfsfólk ráðuneytisins hefði tekið upp á þessu, en aðspurður hvort þetta væri þá star