Formaður Varðbergs — samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál, segir rétt að taka ummælum Bandaríkjaforseta um mögulega útgöngu þess úr Atlantshafsbandalaginu alvarlega. Þó beri að taka yfirlýsingum forsetans með ákveðnum fyrirvörum.Fyrr í vikunni sagðist Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, íhuga það alvarlega að draga Bandaríkin úr NATO þar sem önnur aðildarríki kæmu ekki til aðstoðar í stríði þeirra og Ísraels gegn Íran.„Í mínum huga er þetta þungt og við eigum að taka þessum yfirlýsingum alvarlega. Hins vegar ber að hafa í huga að þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hann kemur með stórkarlalegar yfirlýsingar,“ segir Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs.„Þetta er heldur ekki í fyrsta skiptið sem Atlantshafsbandalagið lendir í krísu. Þetta eru 32 aðildarríki og þau hafa ólíka hagsmuni o