Margir Íslendingar sækja í að komast í sólina yfir páskana og miðað við brottfarir frá Keflavíkurflugvelli fara flestir þeirra til Tenerife, en alls voru 56 flugferðir þangað fyrir páskana.Það er mjög mikið af Íslendingum á eyjunni og maður fann það strax fyrir viku síðan, bara fyrir helgina þá allt í einu bara fylltist allt,“ segir Herdís Hrönn Árnadóttir, vert á Nostalgiu - íslenska barnum á Tenerife. „Maður finnur það þegar maður labbar hérna um göturnar að það er töluð íslenska hérna á öðru hverju horni.“Samkvæmt upplýsingum frá Isavia virðast langflestir þeirra sem eru á faraldsfæti yfir páskana hafa tekið stefnuna á sólina á Kanaríeyjum; fyrir páskana voru 45 flug til Tenerife og 11 til Gran Canaria. Herdís segir að fjöldinn hafi aukist ár frá ári. „Í byrjun var bara flogið einu sinn