Bandarískur hermaður sem var um borð í F-15 orrustuþotu sem var skotin niður yfir Íran í gær er enn ófundinn. Bandaríkjaher og Íranir eru í kapphlaupi um að finna hann, írönsk stjórnvöld heita sem nemur ríflega átta milljónum króna í umbun fyrir þann sem finnur hermanninn.Bandarísk stjórnvöld hafa ekki sagt mikið opinberlega um þetta mál. Donald Trump Bandaríkjaforseti var spurður í símaviðtali í gær hvernig hann myndi bregðast við ef Íranir næðu hermanninum. Hann sagðist ekki vilja ræða það, því vonandi myndi það ekki gerast.Trump var einnig spurður hvort þetta atvik hafi áhrif á mögulegar viðræður við Íran og sagðist hann ekki eiga von á því. Ef Íranir ná þessum bandaríska hermanni yrði það mikill sigur fyrir írönsk stjórnvöld og vafalaust notað í einhvers konar áróðursherferð.Í dag eru