Esjan. Mynd úr safni.Vilhjálmur Þór Guðmundsson / RÚVVeðurstofa Íslands varar við snjóflóðahættu víða um land í dag eftir snjókomu sem bættist ofan á en bast illa við eldri snjó. Náttúruleg snjóflóð hafa fallið víða á landinu og einnig hafa orðið nokkur snjóflóð af mannavöldum. Engin slys hafa orðið.Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að líklega haldi margir til fjalla til að njóta útiveru. Fólk á ferð í fjalllendi er hvatt til að kynna sér snjóflóðaaðstæður áður en haldið er af stað.Veikleikar eru víða í snjóþekjunni í kringum höfuðborgarsvæðið og snjóflóðavaktin mælir sérstaklega gegn því að gengið sé ofar en að Steini í Esjunni, og hugi vel að leiðarvali.