Katla Ársælsdóttir skrifar:Turninum í Elliðaárstöð var nýverið breytt í leiksvið og sviðshópurinnn DÍÓ sýndi þar einleikinn Jötungíma kveður. Hannes Óli Ágúststsson túlkaði sveppinn Jötungímu fyrir áhorfendur en verkið segir frá þessum risasvepp sem hefur komið sér vel fyrir í steypta turninum við Elliðaárstöð. Þar vinnur hann að því að endurvinna, flokka og melta leifarnar af mannkyninu. En Jötungímu þykir það óheyrilega leiðinlegt verk.Handrit og leikstjórn var í höndum Ylfu Aspar Áskelsdóttur og Aðalbjargar Þóru Árnadóttur. Ásamt þeim koma heilmargir listamenn að sýningunni. Þar má nefna Sögu Kjerúlf Sigurðardóttur sem sá um sviðshreyfingar sem endurspegluðu verkefni Jötungímu mjög vel. Brynja Björnsdóttir sá um leikmynda- og búningahönnun en leikmynd verksins í þessu óhefðbundna leikhú