Von er á áframhaldandi snjókomu og éljagangi á Norðaustur- og Austurlandi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er kalt í veðri miðað við árstíma og verður hiti um eða undir frostmarki í dag.Á morgun, páskadag, er útlit fyrir norðaustan 8-13 m/s með éljum norðan-og austanlands. Um landið suðvestanvert verður áfram svalt en þó hægari vindur, þurrt og möguleiki á sólarköflum.Á mánudag gera spár ráð fyrir að djúp lægð nálgist úr suðri með vaxandi austanátt. Víða verður stormur eða rok á sunnanverðu landinu eftir hádegi og slydda eða snjókoma. Veðrið færist síðar einnig norður yfir heiðar. Um kvöldið hlánar með rigningu og eru þau sem hyggja á ferðaveður þennan dag hvött til að fylgjast með veðurspám. ÁFRAMHALDANDI ÓFÆRÐ FYRIR AUSTAN Á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Suðvestu